„Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn hefur undanfarna áratugi byggt upp þetta fáránlega og arfavitlausa kerfi og lagt sig fram um að viðhalda því,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, í umræðum um störf þingsins á Alþingi í vikunni.
Guðmundur Ingi hefur látið sig málefni öryrkja og aldraðra mjög varða í störfum sínum sem þingmaður. Í ræðu sinni í gær sagði hann það gróft fjárhagslegt ofbeldi að skerða lífeyrissjóðsstekjur öryrkja og aldraðs fólks í almannatryggingakerfinu um 75 til 100 prósent.
„Að halda eftir 20.000–25.000 kr. af hverjum 100.000 kr. eða jafnvel engu er ekki bara gróf skattheimta og skerðingar heldur hrein og klár eignaupptaka,“ sagði hann og bætti við að hver ríkisstjórnin á fætur annarri hafi ekki gert neitt til að breyta þessu.
„Þá er einnig verið að bæta gráu ofan á svart og svikin loforð eftir loforð fyrir kosningar um að breyta þessari grófu eignaupptöku á lögvörðum lífeyrissjóði aldraðra og veiks fólks. Að skerða lífeyrissjóð almannatrygginga eftir fyrstu 20.000 kr. er fjárhagslegt ofbeldi sem bitnar verst á þeim sem síst skyldi, þ.e. launafólki, og konur koma þar verst út,“ sagði hann.
Hann sagði að hjá ríkisstjórninni væri öllu snúið á hvolf í þessum „stórfurðulega bútasaumaóskapnaði“ sem almannatryggingakerfið er orðið að.
„Ömurlegt kerfi sem ríkisstjórnir síðustu áratuga hafa komið á og viðhaldið og gert viljandi svo flókið og vitlaust að venjulegt fólk getur ekki reiknað út keðjuverkandi skerðingarnar. Þetta þýðir á mannamáli að þeir verst settu eru settir beint í sárafátækt og þá á sama tíma og kvótakóngar græða á tá og fingri á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar og borga lítið sem ekkert í gjöld af ofurgróðanum. Ekki er tekin króna af þeim í skerðingar eða keðjuverkandi skerðingar af tugmilljarða gróðanum.“
Guðmundur Ingi spurði loks hvort þessir aðilar myndu sætta sig við að greiða 75% af gróða sínum í skatt til ríkisins.
„Nei. En á sama tíma bindur skerðingarofbeldi þá verst settu í sárafátækt í almannatryggingakerfinu í boði ríkisstjórnarinnar. Slæmt er þeirra ranglæti en verra er svokallað réttlæti, réttlæti sem kemur bara fram rétt fyrir kosningar og eru innantóm loforð um að nú sé þeirra tími kominn. Allt fer á sömu leið áður: Auðurinn streymir beint í vasa auðmanna.“