Guð­mundur Ingi: „Er hægt að leggjast lægra?“ – Siðaðar þjóðir löngu hættar þessu

„En ég vil bara benda á það að siðaðar þjóðir eru löngu hættar þessu. Ef þær geta hætt þessu, hvers vegna í ó­sköpunum erum við þá að gera þetta?“

Þessari spurningu varpaði Guð­mundur Ingi Kristins­son, þing­maður Flokks fólksins, fram á Al­þingi í gær. Þar beindi hann fyrir­spurn til Kristjáns Þórs Júlíus­sonar um svo­kallaðar blóð­merar sem Hring­braut fjallaði um á dögunum. Þá er blóð tekið úr fyl­fullum merum í þeim til­gangi að vinna dýr­mætt hormón sem finna má í fylgjunni. Það hefur meðal annars því hlut­­verki að gegna að örva starf­­semi eggja­­stokka og er einna helst notað í svína­rækt.

Áður hafði Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylkingarinnar, vakið at­hygli á málinu.

Guð­mundur Ingi benti á að líf­tækni­fyrir­tæki borgi hátt verð fyrir hormónið og því hafi blóð­mera­hald aukist til muna hér á landi á síðustu árum.

„Á nokkrum stöðum er þetta orðið stór­bú­skapur með allt að 200 hryssur í blóð­fram­leiðslu. Miklir fjár­hags­legir hvatar eru til staðar til að há­marka af­köstin og því eru blóð­merar látnar ganga með fol­öld eins oft og mögu­legt er, eða þar til hormónið fyrir­finnst ekki lengur í blóði þeirra og þá er þeim slátrað. Fol­öldin fara jafnan beint í slátur­hús.“

Guð­mundur Ingi spurði Kristján Þór hvað honum fyndist um þetta. Kristján svaraði því til að honum fyndist langt seilst að segja að um dýra­níð sé að ræða. Um sé að ræða starf sem unnið er undir eftir­liti dýra­lækna og Mat­væla­stofnunar.

„Þegar ég spurður hvað mér finnist um þessa starf­semi finnst mér ekki nein inn­stæða fyrir þeirri full­yrðingu að fella alla þá sem undir þessum hatti starfa undir það að þarna sé stór­fellt dýra­níð í gangi, mér finnst það ekki skyn­sam­legt og ekki eðli­legt. Ég hef ekki fengið kvartanir um slíkt inn á mitt borð sem ráð­herra mála­flokksins og mér kæmi veru­lega á ó­vart ef þeir sem eru í þessari at­vinnu­starf­semi ynnu með þeim hætti,“ sagði Kristján Þór.

Guð­mundur Ingi steig aftur í pontu og benti á að siðaðar þjóðir væru löngu hættar þessari starf­semi. Velti hann því fyrir sér hvers vegna við gerðum það ekki líka.

„Hver er til­gangurinn? Og svo segir hann að þetta sé undir eftir­liti Mat­væla­stofnunar. Jú, en það er búið að fella það undir til­raunum á dýrum, dýra­til­raunum, ekki vel­ferð dýra. Ég spyr: Hvers vegna í ó­sköpunum er það þar undir? Og ef þetta er allt í lagi, hvers vegna í ó­sköpunum þarf að pína hrossin og taka úr þeim blóð til þess ein­göngu að auka fram­leiðslu og getu gyltna til að fram­leiða meiri kjöt? Getum við verið í fá­rán­legri stöðu en þetta? Er hægt að leggjast lægra? Ég sé engan til­gang með þessu. Ég spyr: Er ekki löngu kominn tími á að við högum okkur eins og aðrar siðaðar þjóðir og hugsum um vel­ferð dýra og hættum þessu?“