„Við erum að tala um 426.000 kr. sem eru horfnar, bara vegna þess að þetta var ekki tengt við vísitölu. Hvaða réttlæti er í þessu? Er þetta fyrirframákveðið til að klekkja á þessum einstaklingum eða er þetta hugsunarvilla sem þarf að leiðrétta?“
Þetta sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær.
1,5 milljónir í stað 1 milljónar
Guðmundur Ingi hefur talað nokkuð um verðtrygginguna að undanförnu en í ræðu sinni í gær benti hann á að engin vísitölutrygging væri á bílastyrkjum sem fatlaðir geta nýtt sér. Svona hefði þetta verið lengi og um stórar upphæðir væri að ræða fyrir einstaklinga sem hafa lítið á milli handanna.
„Ef hún hefði verið vísitölutryggð ætti einstaklingur í dag að fá 1,5 milljónir í stað 1 milljónar, hann getur ekki leyst út bílinn sinn til að fara í vinnu, til læknis eða annað. Hann er búinn að selja hinn bílinn. Ef vísitala hefði verið inni í þessu hefði hann átt fyrir því og ætti meira að segja hálfa milljón afgangs sem hann hefði ekki þurft að nota.“
Guðmundur Ingi spurði:
„Hvers vegna er það? Er það samþykkt að ríkisstjórn eftir ríkisstjórn ákveði að þessir aðilar séu þeir einu sem fái ekki verðtryggðar bætur? Milljón á verðlagi ársins 2009 samsvarar 1,5 milljónum í dag. Við erum að tala um 426.000 kr. sem eru horfnar, bara vegna þess að þetta var ekki tengt við vísitölu. Hvaða réttlæti er í þessu?“
Gengisbreytingar, ekki verðbólga
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra svaraði á þá leið að þetta væru ekki einu aðilarnir sem geta ekki gengið út frá því sem vísu að fjárhæðir fylgi verðlagi inn í framtíðina.
„Ríkið væri í vondum málum ef öll útgjaldahliðin væri verðtryggð. Þá væri í raun og veru sjálfvirkur útgjaldavöxtur án þess að um það væri fjallað sérstaklega hér á þinginu,“ sagði Bjarni og bætti við að þetta álitamál sé fyrst og fremst komið inn í umræðuna núna út af gengisbreytingum sem ekki hafa skilað sér út í verðlagið.
„Það eru gengisbreytingarnar, ekki verðbólgan, sem valda því að bílar eru að verða dýrari í innkaupum og styrkurinn dugar þess vegna hlutfallslega skemur á móti tilkostnaði við að útbúa þessar bifreiðar. Það er alveg álitamál að við getum látið það gerast í báðar áttir, bæði þegar gjaldmiðillinn okkar er að styrkjast eða veikjast, að það séu svona sveiflukennt hvernig styrkurinn dugar hverju sinni til að mæta þeim kostnaði sem við erum hérna að reyna að hjálpa mönnum með,“ sagði Bjarni og bætti við:
„Ég held að það sé út af fyrir sig góð ábending hjá háttvirtum þingmanni að það hefur dregið mjög úr hlutfallslegum stuðningi við þessi mikilvægu kaup þeirra sem á þessu þurfa að halda. En það hefur ekki með verðlagið að gera í mínum huga.“
Guðmundur Ingi steig aftur í pontu og sagðist ósammála Bjarna.
„Ef þetta hefði verið verðtryggt væri þessi maður ekki í þessari aðstöðu. Það er algjörlega staðreynd. Þess vegna er óskiljanlegt að það sé hægt að klippa verðtryggingu út bara þarna,“ sagði Guðmundur.