Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga er meðal fyndustu samfélagsmiðlurum landsins, en hann heldur sig enn við Facebook ólíkt flestum húmoristum landsins sem hafa flutt sig á Twitter.
Guðmundur sagði því á Facebook síðu sinni í gærkvöld að hann hafi tekið þátt í “Boys only” hittingi á vegum úthringigengis Samfylkingarinnar. Tíu strákar hafi hisst í höfuðstöðvum flokksns til að hringja í félaga og taka stöðuna í politíkinni.
Guðmundur gekk nýverið til liðs við Samfylkinguna og gerði sér von um sæti á framboðslista flokksins í Reykjavík. Honum varð ekki að ósk sinni, þrátt fyrir gott gengi í skoðannakönnun á vegum flokksins. Uppstillinganefnd hafnaði honum vegna óvissu um kjörgengi en Guðmundur er tiltölulega nýlaus úr fangelsi eftir afplánun langs fangelsisdóms fyrir fíkniefnasmygl.
Guðmundur lætur ekki á sig fá þótt flokkurinn hafi hafnað kröftum hans sem stjórnmálamanns að sinni og tekur virkann þátt í starfi flokksins eins og færslan sýnir.
Einhver hugrenningartengsl hefur þetta vakið með Guðmundi sem rifjar upp „boys only“ kvöldin í denn, en Guðmundur er samkynhneigður og genginn út og giftur fyrir löngu.
„Mörg hundruð símtöl og skemmtilegt að taka þátt. Vissulega samt öðruvísi en “boys only” kvöldin í denn,“ sagði Guðmundur um strákastundir sínar.
Hvort hann var að tala um kósí kvöld eða einhverja undirheimastarfsemi lætur hann liggja á milli hluta en eftirlætur fylgjendum sínum að lesa milli línanna.
“Boys only” var hittingur í morgun á vegum úthringigengis Samfylkingarinnar þar sem 10 strákar hittust í Sóltúninu til...
Posted by Guðmundur Ingi Þóroddsson on Laugardagur, 10. apríl 2021