Guðmundur Jörundsson fatahönnuður lenti í einkar óheppilegu atviki í gær. Guðmundur greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni þar sem hann er án efa í hópi skemmtilegustu Íslendinganna.
„Tróð í hugsanaleysi litla plasthringnum utanum páskaeggjamálshætti lengst uppí eyrað á mér. Stuttu síðar lá fjölskyldan öll ofaná mér með tangir. Við náðum þessu út loksins með að dæla ólífuolíu uppí eyrað. Sennilega mómentið þar sem börnin föttuðu að pabbi væri greindarskertur,“ segir Guðmundur.
Færsla Guðmundar hefur vakið kátínu margra. Einn af fylgjendum hans segist hafa talið að hann væri að rifja upp sögu frá því hann var barn – þar til hann sá hann minnast á eigin börn.
„Já einmitt. Ég var farinn að kvíða því mjög að mæta uppá slysó fullorðinn búinn að troða einhverju uppí eyrað á mér,“ segir Guðmundur. Þá segir einn að raunverulegu mistökin hafi verið að borða páskaegg heilum tveimur vikum fyrir páska.
Tróð í hugsanaleysi litla plasthringnum utanum páskaeggjamálshætti lengst uppí eyrað á mér. Stuttu síðar lá fjölskyldan öll ofaná mér með tangir. Við náðum þessu út loksins með að dæla ólífuolíu uppí eyrað.
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) March 16, 2021
Sennilega mómentið þar sem börnin föttuðu að pabbi væri greindarskertur