Guð­mundur í Af­stöðu er með nafn á nýja hraunið

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Af­stöðu - fé­lags fanga, er kominn með nafn á nýja hraunið sem sprettur nú upp úr jörðu í Geldinga­dal. Þetta til­kynnir hann í stuttri en skemmti­legri Face­book færslu.

Margir hafa spáð í spilin vegna hins nýja eld­goss sem hófst á Reykja­nesi í gær. Páll Einars­son, jarð­eðlis­fræðingur, lét hafa eftir sér á Bylgjunni nú síð­degis að mögu­lega taki því ekki að nefna hraunið, það sé svo lítið.

Guð­mundur Ingi, sem vakið hefur at­hygli fyrir skel­egga fram­göngu sína í bar­áttu sinni fyrir bættum réttindum fanga, lætur þó engan bil­bug á sér finna líkt og lesa má í Face­book færslu hans.

„Ef nýja hraunið fær ekki að heita Litla hraun þá eru það for­dómar ! Litla hraun skal það heita og ekkert annað!!!!“

Ef nýja hraunið fær ekki að heita Litla hraun þá eru það fordómar ! Litla hraun skal það heita og ekkert annað!!!! 💪🏻

Posted by Guðmundur Ingi Þóroddsson on Saturday, 20 March 2021