Guðmundur Auðunsson, sem skipar fyrsta sætið á lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar, mætti í ringulreiðina á Keflavíkurflugvelli á laugardag.
Guðmundur segir frá upplifun sinni í pistli sem birtist á vef Miðjunnar í morgun og telur hann ljóst að sú ákvörðun að gera ISAVIA að opinberu hlutafélagi hafi reynst dýrkeypt.
„Ég er nú að taka son minn í háskólanám til Bandaríkjanna. Við fjölskyldan mættum á flugvöllinn vel tímanlega (sem betur fer) síðastliðinn laugardag og bjuggumst við nokkurri örtröð. Margir voru í flugstöðinni, eins og við mátti búast yfir hásumarið, og töluverð röð eins og mátti búast við þar sem athuga þurfti að allir pappírar og Covid próf væru í lagi auk bólusetningarvottorða. Innskráningin í flugið gekk ágætlega en þá versnaði málið. Til að komast í gegnum öryggisskoðun þurftum við að standa í röð sem silaðist eins og snákur um neðri hæðina á flugstöðinni, upp stigann þar sem hún hélt áfram. Ég hef aldrei séð aðra eins röð. Svo þegar við komumst loksins að öryggisskoðuninni var helmingur skoðunarhliðanna lokaður!“ segir Guðmundur í pistli sínum.
Hann bendir á að atvinnuleysi í Reykjanesbæ sé mikið um þessar mundir, eða 14%. Þykir sumum það skjóta skökku við að á sama tíma sé röð út úr dyrum í flugstöðinni og ekki mannskapur til að manna helming öryggishliðanna sem var lokaður.
Guðmundur hrósar þó því starfsfólki sem stóð vaktina í hástert og segir það hafa verið frábært.
„Vann undir mikilli pressu, pirraðir farþegar sem höfðu beðið með grímurnar í langan tíma í gífurlegri mannþröng þar sem margir óttuðust um að smitast í mergðinni. Ég spjallaði við einn starfsmanninn og hún sagði mér að þau væru illa undirmönnuð og gerðu sitt besta undir erfiðum kringumstæðum. Sem þau svo sannarlega gerðu. Ég gat ekki annað en lýst aðdáun minni á starfsfólkinu.“
Hann segir aðra sögu að segja af fyrirtækinu sem ber ábyrgð á málinu.
„Eftir að Ísavía var OFH vætt (þ.e. gert að opinberu hlutafélagi) hafa senditíkur Sjálfstæðisflokksins komið sér fyrir í fyrirtækinu í gegnum Fjármálaráðuneytið, skammtað sér ofurlaun og læðist að manni sá grunur sumir ætli að komast yfir feitan bita í gegnum einkavinavæðingu. Læðist að manni sá grunur að verið sé að halda úti lágmarks þjónustu til að hægt sé að segja að einokunarfyrirtækið sé betur komið í höndum einkaaðila. Klassísk nýfrjálshyggjutaktík,“ segir hann.
Hann segir að ISAVIA sé í eðli sínu einokunarfyrirtæki sem eigi að sjálfsögðu að vera í ríkiseigu.
„Ísavía á að vera þjónustufyrirtæki rekið af ríkinu en svona hefur nýfrjálshyggjan og hfvæðingin farið með almannaþjónustuna. Í stað þess að ráða atvinnulaust fólk er Ísavía rekið eins og gróða fyrirtæki sem er verið að undirbúa einkavæðingu á til vildarvina. Ég legg það til að fyrirtækið verði aftur gert að ríkisstofnun þar sem lýðræðislegt aðhald eigi sér stað af almenningi,“ segir hann en pistilinn má lesa í heild sinni á vef Miðjunnar.