Guðmundur: Hjónin fá nöturlega brúðkaupsgjöf frá ríkinu – Er þetta eðlilegt?

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, segir að par hafi haft samband við hann um daginn og spurt hann hvað myndi gerast ef þau myndu ganga í hjónaband.

Guðmundur vakti athygli á þessu í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi á dögunum, en tilefnið var umræða um launahækkun Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitunnar. Laun Bjarna hækka um 370 þúsund krónur á mánuði en auk þess fær hann þriggja milljóna króna eingreiðslu.

„Á sama tíma og við heyrum um launahækkanir upp á 370.000 krónur á mánuði, það ofan á 2,5 milljón króna mánaðarlaun og einnig eingreiðslu upp á 3 milljónir króna til sama aðila, er fólk sem þarf að lifa á rúmlega 200.000 krónur á mánuði í almannatryggingakerfinu að verða fyrir skerðingu upp á 68.000 krónur á mánuði vegna maka eða bara vegna þess að barn þess verður 18 ára gamalt,“ sagði hann.

Guðmundur Ingi nefndi svo hinn svokallaða giftingarskatt og nefnir að par hafi haft samband við hann um daginn en bæði eru öryrkjar.

„Hvað skeður ef við giftum okkur? Hvað skeður ef þau taka sig til og gifta sig? Ég sagði þeim að brúðkaupsgjöfin frá Tryggingastofnun ríkisins í formi skerðingar yrði upp á 146.000 krónur, eftir skatt nærri 94.000 krónur.“

Guðmundur spurði hvað einstætt foreldri, öryrki, með barn eigi að gera þegar barnið verður 18 ára.

„Á það að henda því út? Á það að skrá það annars staðar? Hvað á það að gera þegar það missir 68.000 krónur, 47.000 krónur eftir skatt, af tekjum sínum? Ef við heimfærum þetta yfir á ráðherra, laun hans, þýðir það að þegar barnið hans verður 18 ára missir hann 600.000 krónur. Er það eðlilegt? Eða meðallaunamaður með 700.000 krónur í tekjur, þegar barnið hans verður 18 ára missir hann 200.000 krónur. Er ekki kominn tími til að hætta þessu fjárhagslega ofbeldi, hæstvirtur félags- og barnamálaráðherra?“