Guð­mundur: Hjónin eru for­rík, búa í lítilli íbúð og eiga ekki bíl

Guð­mundur Stein­gríms­son, fyrr­verandi þing­maður, segir að síðast­liðin vika hafi ein­kennst af tveimur stórum við­burðum sem eiga eftir að valda miklum straum­hvörfum í náinni fram­tíð.

Guð­mundur skrifar um þetta í Frétta­blaðið í dag en annars vegar er um að ræða úr­slit for­seta­kosninganna í Banda­ríkjunum og hins vegar fréttir þess efnis að þróun bólu­efnis gegn CO­VID-19 sé komin langt á leið.

„Það er risa­við­burður. Eins og með hinn, þá eykur þessi við­burður líka von, ekki bara vegna sér­lega á­nægju­legs inni­halds tíðindanna, heldur líka vegna fólksins sem á í hlut. Ég þekki þau auð­vitað ekki, en af fréttum að dæma virðast hjónin dr. Ugur Sahin og dr. Özlem Türeci vera ein­stakt fólk,“ segir Guð­mundur.

„Þau eru tyrk­neskir inn­flytj­endur í Þýska­landi. Þau stofnuðu og eiga fyrir­tækið BioN­Tech, sem í vikunni til­kynnti bólu­efnið á­samt lyfjarisanum Pfizer. Þegar tíðindi bárust um að bólu­efnið virkaði í 90% til­vika munu þau hjónin hafa fagnað með því að blanda sér tyrk­neskt te. Og svo fóru þau víst aftur að vinna,“ segir Guð­mundur og eru þessar lýsingar til marks um lítil­læti þeirra.

„Þau eru for­rík. Þau byggðu upp fyrir­tæki sitt í líf­tækni­iðnaði úr engu nema þekkingu sinni. Þau búa hins vegar í lítilli íbúð ná­lægt vinnunni á­samt ung­lings­dóttur sinni og hjóla í vinnuna á hverjum degi. Þau eiga engan bíl.“

Guð­mundur segir að fegurðin sé mikil og úti um allt Þýska­land og Evrópu öskri og æpi ný­nasistar og hvítras­istar um að inn­flytj­endur séu skrað­ræði og að loka eigi löndum. Þá hafi Donald Trump Banda­ríkja­for­seti lokað inn­flytj­enda­börn inni í búrum til að fram­fylgja þannig haturs­boð­skap.

„Og þá gerast svona við­burðir, svona eins og ver­öldin öll, ör­lögin, náttúran, sagan og lífið hvísli í einni and­rá í eyrað á öllu þessu æsinga­fólki: Þið hafið rangt fyrir ykkur í for­dómum ykkar og hatri. Þið munið alltaf hafa rangt fyrir ykkur.“

Það voru nefni­lega tyrk­neskir inn­flytj­endur í Þýska­landi sem fundu upp bólu­efnið við CO­VID.

„Og það sem meira er: Þau gerðu það í sam­starfi við Grikkja. Hann heitir Albert Bourla og er yfir­maður Pfizer. Í æsinga­heimum eiga Grikkir og Tyrkir í lang­varandi deilum um eitt­hvað sem enginn man hvað er. Í raun­heimum venju­legs fólks starfar það saman og leitar lausna við ógnar­stórum sam­mann­legum vanda. Svona geta dagarnir aukið manni von. Rauði þráður stór­tíðandanna beggja vegna At­lant­sála snýst um fólk — sam­starf þess, auð­mýkt þess, visku, á­byrgð og hæfni, og sigur þessa fólks í viður­eignum við til­vistar­legar ógnir. Og það eru góð skila­boð til barnanna okkar.“