Guð­mundur hjólar í íslenskt fyrir­tæki sem stór­græddi á CO­VID: „Svo mikil um­svif á tímum neyðar­stigs að eig­endur neyddust til að greiða sér 750 milljónir í arð“

„Fréttir af ógnar­gróða heild­sölunnar Lyru vekja ó­neitan­lega spurningar um það hvort við­skipta­sið­ferði lúti ekki ein­hverjum ör­lítið strangari lög­málum en venju­lega á tímum heims­far­aldurs og neyðar,“ skrifar Guð­mundur Gunnars­son ristjóri Markaðins í Frétta­blaðinu í dag.

„Lög­málum sem ganga ekki alveg fram af venju­legu fólki og heil­brigðis­kerfi heillar þjóðar. Lög­málum sem mis­bjóða ekki þeim sem stóðu sólar­hrings­vaktir í fram­línunni eða misstu allt sitt í efna­hags­þrengingunum,“ bætir hann við.

Heild­salan Lyra hagnaðist um nærri tvo milljarða króna í fyrra, að miklu leyti með sölu á Co­vid-tengdum tækjum og vörum til Lands­spítalans án út­boðs.

„Á meðan þjóðir heims hírð­ust í tveggja ára sam­felldri smit­gát græddu eig­endur heild­sölu, sem selur vörur til efna­greiningar, sem sagt á tá og fingri. Mest­megnis með sölu til ríkisins án út­boðs. Á grund­velli neyðar­réttar í ljósi á­standsins. Vegna sölu á far­sóttar­vörum. Hagnaður fyrir­tækisins fjór­faldaðist í far­aldrinum. Hvorki meira né minna. Það verða að teljast dá­góðar heimtur hjá krútt­legu fjöl­skyldu­fyrir­tæki. Svo mikil voru um­svif fyrir­tækisins á tímum neyðar­stigs að eig­endur fyrir­tækisins neyddust til að greiða sér 750 milljónir króna í arð,“ skrifar Guð­mundur.

„Eitt­hvað segir manni að fleiri við­líka fréttir verði sagðar á næstu vikum og mánuðum. Þegar pattara­legir árs­reikningar kórónu­veiru­kónganna taka að streyma inn til Skattsins. Þau eru nefni­lega til. Fyrir­tækin og ein­staklingarnir sem sjá tæki­færi í neyðinni og geta ekki stillt sig um að maka krókinn á kostnað ríkis og skatt­greið­enda. Undir inn­blásnum ræðum stjórn­mála­manna um mikil­vægi þess að allir leggi sitt af mörkum á erfiðum tímum. Í nafni sam­stöðunnar.“

„Kannski er ekkert við það að at­huga. Rétt fyrir­tæki á réttum stað með réttu vörurnar. Svona eins á öllum tímum þrenginga í gegnum tíðina. Þetta er sem sagt höskuldar­við­vörun. Ef þessar fréttir koma illa við ykkur þá mæli ég ein­fald­lega með vænum skammti af æðru­leysis­bæninni. Það er lítið sem við, venju­lega fólkið, getum við þessu gert. Nema bundið veika von við að þessi mál verði að minnsta kosti tekin til skoðunar. Þó ekki væri nema til að læra af þeim,“ skrifar Guð­mundur að lokum.