Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, urðaði yfir Staksteina Morgunblaðsins á Facebook-síðu sinni fyrr í dag. Höfundur Staksteina heldur því fram að aðeins 1,3 prósent svarenda í könnun sem Strætó lét framkvæma fyrir sig telji að Borgarlínan umdeilda verði til hagsbóta fyrir almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Guðmundur segir þetta algjöran misskilning og gefur nafnlausum höfundi Morgunblaðsins „falleinkunn í talnalæsi“ eins og hann orðar það sjálfur: „Staksteinar Morgunblaðsins fá algjöra falleinkunn í talnalæsi í dag. Því er skellt fram að skv. könnun Strætó séu einungis 1,3% svarenda sem telji að borgarlínu verkefnið verði til bóta fyrir almenningssamgöngur. „Hin 98.7% telja að allir þessir milljarðar muni ekkert gagnast þeim.“ Hér er nánari skýring á þessum tölum sem Staksteinum Morgunblaðsins tekst að afbaka,“ segir Guðmundur og er heitt í hamsi.
Hann heldur áfram og útskýrir nánar úrslit könnunarinnar: „Staksteinar eru að vitna í eina spurningu úr könnun Zenter sem var gefin út í mars. Spurningin hljómaði svona: „Hvað gæti Strætó gert, ef eitthvað, til að þú myndir ferðast (oftar) með Strætó.“ Þetta var „opin spurning“, þannig það voru ekki gefnir neinir sérstakir svarmöguleikar. Fólk skrifaði bara það sem þeim lá á hjarta og Zenter flokkaði síðan svörin,“ segir Guðmundur.
Hann greinir nánar frá: „Tæp 30% svarenda skrifar eitthvað á þá leið að fleiri ferðir myndu hjálpa og önnur tæp 30% skrifa um betra leiðakerfi. (Eitthvað sem kemur með Nýju leiðaneti Strætó og Borgarlínu.) Síðan voru 5 manns eða 1,3% sem skrifuðu opið svar um Borgarlínu. Það þýðir auðvitað ekki sjálfkrafa að hin 98,7% svarenda hafi enga trú á Borgarlínu,“ segir Guðmundur.
Hann segir að ekki sé hægt að fullyrða um fjölda þeirra sem hafa trú á Borgarlínunni: „Í þessari könnun er ekki hægt að fullyrða neitt um hversu margir hafa trú á Borgarlínunni. Það er hvergi spurt um hversu margir telja að þau muni nota Borgarlínuna eða hafa trú á henni. Þessi könnun snýst í raun ekkert um Borgarlínu. Hún snýst um Strætó,“ segir Guðmundur og gefur ekkert eftir.
Hann endar pistilinn með því að skamma Moggann: „Ég veit að Staksteinar er nafnlaus skoðanapistill, en það hlýtur að vera meiri „standard“ hjá ritstjórn eins stærsta fjölmiðils landsins,“ segir Guðmundur að lokum.