Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, hyggst gefa kost á sér í efsta sæti á lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi. Þetta segir hann í samtali við Vísi.
Í frétt Vísis kemur fram að uppstillingarnefnd muni stilla upp á lista flokksins eftir áramót og segist Guðmundur hafa metnað til að komast í áhrifastöðu. Þegar hann gegndi stöðu bæjarstjóra var hann ópólitískur en nú hefur hann sem fyrr segir gengið til liðs við Viðreisn.
Aðspurður hvort hann stefni á að taka sæti á Alþingi á næsta ári segist Guðmundur vita hvar metnaður hans liggur og þá hafi hann keppnisskap.
„Ef það er staða sem flokkurinn og flokksmenn treysta mér til að taka þátt í mun það ekki standa á mér. Svo er þetta bara undir kjósendum komið,“ segir hann við Vísi.