Guðmundur Franklín undirbýr flutninga á Bessastaði

Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi er að undirbúa sig til að flytja til Bessastaða eftir forsetakosningarnar á laugardaginn. Telur hann að hann muni vinna nauman sigur á Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Kannanir sýna hins vegar að Guðmundur mælist með undir tíu prósent fylgi,

„Þetta er ein­vígi. Fólk hef­ur þess val að velja á milli ann­ars veg­ar virks for­seta, eða óvirks for­seta,“ sagði Guðmundur Franklín í viðtali í Kastljósií gærkvöldi.

„Ég býð mig fram til forseta til að vera öryggisventill þjóðarinnar á Bessastöðum,“ sagði Guðmundur.

„Það sem drífur mig áfram er fyrst og fremst réttlætiskennd. Ég er í raun að halda áfram starfi Ólafs Ragnars Grímssonar sem byrjaði á að nýta sér 26. greinina sem við köllum málskotsréttinn.“

Hann segir að ef Alþingi kæmi í veg fyrir að hann lækkaði laun forseta myndi hann fara mánaðarlega með helming launa sinna á Barnaspítala Hringsins.

Þá segist hann dást að Donald Trump Bandaríkjaforseta. „Ég dáist að því hvað hann er búinn að vera duglegur. Hann er búinn að útrýma atvinnuleysi hjá svörtu fólki, hjá konum, hjá ungu fólki. Það hefur aldrei verið betra efnahagslíf í Bandaríkjunum heldur en akkúrat núna.“

Framkoma Trump truflar hann ekki. „Ég horfi ekki á manninn, ég horfi á það sem hann gerir. Og það er dálítið lýsandi fyrir mig.“

Guðmundur Franklín trúir að hann verði forseti um helgina. „Já, alveg allar götur, ég hugsa að þetta fari 53/47.“