Guðmundur Franklín skipar nýja oddvita: Sigurlaug og Guðlaugur kynnt til leiks

Uppstillingarnefnd Frjálslynda lýðræðisflokksins hefur skipað tvo nýja oddvita, þau Sigurlaugu Gísladóttur, verslunarmann í Norðvesturkjördæmi og Guðlaug Hermannsson, framkvæmdastjóra í Suðvesturkjördæmi.

Eins og kunnugt er mun Guðmundur Franklín Jónsson, hagfræðingur, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og stofnandi flokksins, verða oddviti í Reykjavík norður. Þá verður Glúmur Baldvinsson, stjórnmálafræðingur, oddviti í Reykjavík suður. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn tilkynnti svo í vikunni að Magnús Guðbergsson öryrki yrði oddviti í Suðurkjördæmi og Björgvin Egill Vídalín Arngrímsson eftirlaunaþegi yrði oddviti í Norðausturkjördæmi.

Sigurlaug er fædd 1963 og alin upp í Skagafirði en nú búsett á Blönduósi með eiginmanni sínum, Reyni Sigurði Gunnlaugssyni. Þar reka hjónin lítið kaffihús, Húnabúð, sem einnig selur blóm og gjafavörur.

Guðlaugur er fæddur 1950 og alinn upp í Reykjavík. Hann stundaði nám í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi og í skrúðgarðyrkju. Framan af sinnti hann garðyrkjunni á sumrin en stundaði sjómennsku á veturna. Árið 2004 stofnaði hann fyrirtæki sem stundar útflutning á sæbjúgum til Kína og rekur hann fyrirtækið enn í dag, að því er segir í tilkynningu flokksins.