Svo virðist sem Guðmundur Franklín Jónsson, forsetaframbjóðandi og athafnamaður á Borgundarhólmi, sé farinn að sjá eftir hvarfi Jóhönnu Sigurðardóttur af sviði stjórnmálanna.
„Það heyrist ekki mikið frá fyrrverandi forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur í aðför yfirstjórnar Icelandair og lífeyrissjóðanna sem eiga félagið að íslensku flugfreyjustéttinni í kjarabaráttu þeirra,“ skrifar hann í færslu á Facebook-síðu sinni.
Samhliða færslunni birtir Guðmundur gamla mynd af Jóhönnu til vitnis um flugfreyjuferlil hennar.
Mikið hefur verið fjallað um kjaraviðræður Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair að undanförnu. Hafa stjórnendur Icelandair meðal annars verið gagnrýndir fyrir að reyna að knýja fram mikla kjaraskerðingu hjá flugstéttinni.
Gaf flugfélagið út í gær að Flugfreyjufélagið hafi hafnað lokatilboði Icelandair og þurfi „nú að skoða aðrar leiðir.“
Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins, greindi frá því í gær að til greina kæmi að Icelandair Group myndi láta reyna á kjarasamningsákvæði fyrir félagsdómi, svo að unnt sé að ráða flugfreyjur sem standi utan Flugfreyjufélags Íslands.
Verkalýðshreyfingin hefur gagnrýnt slíkar hugmyndir harðlega á sama tíma og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að öll áhersla sé lögð á að ná samningum við Flugfreyjufélagið.