Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrum forsetaframbjóðandi, hefur áhyggjur af innrás Rússa í nýjum pistli á Facebook. Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur, skrifaði grein í dag þar sem hann sagði að Ísland væri auðvelt skotmark fyrir Rússa þar sem við erum berskjölduð þjóð og herlaus þjóð.
„Að sjálfsögðu geta refsiaðgerðir Rússa beinst að Íslandi, fyrst við lýstum yfir stríði við Rússa! Nú getum við loksins tekið fram silfrið og barist við kjarnorkuveldið. Það tæki Rússa ca. 6 tíma að legga Ísland undir sig. Fyrst skera þeir á alla fjarskiptakapla frá landinu og svo sprengja þeir upp flugvellina.... Hvernig í ósköpunum datt stjórnvöldum í hug að ákvarðanir þeirra, yfirlýsingar og þáttakan í stríðinu gegn Rússum hafi engar afleiðingar?“ skrifar Guðmundur Franklín á facebook.