Guð­mundur Frank­lín ó­sáttur: „Í hvaða ver­öld búa þessir þing­menn?“

„Í hvaða ver­öld búa þessir þing­menn? Hvað fær fólk til þess að setja svona frá sér,“ segir Guð­mundur Frank­lín Jóns­son, fyrr­verandi for­seta­fram­bjóðandi og mögu­legur fram­bjóðandi í næstu Al­þingis­kosningum.

Sitt sýnist hverjum um þá þingsályktunartil­lögu Ólafs Þórs Gunnars­sonar og Bjark­eyjar Ol­sen Gunnars­dóttur, þing­manna VG, um að skoðað verði hvort rukkað verði meira fyrir að eiga bíl. Leggja þau til að sam­göngu­ráð­herra og um­hverfis­ráð­herra meti hvort og þá hvernig hægt sé að veita sveitar­fé­lögum heimild til inn­heimtu um­hverfis­gjalda.

Guð­mundur Frank­lín lýsti skoðun sinni á þessari til­lögu á Face­book-síðu sinni og er ó­hætt að segja að hann sé ekki hrifinn.

„Gargandi "snilld" ! Hefur þetta hústöku­fólk á Al­þingi aldrei heyrt talað um bif­reiða­gjald, úr­vinnslu­gjald, bif­reiða­tryggingar, vöru­gjöld á bif­reiðar, á­lögur á elds­neyti eins og olíu­gjald, kol­efnis­skatt, bensín­skatt, sér­stakan bensín­skatt, og virðis­auka­skatt ofan á allt saman.“

Ekki þykir ó­lík­legt að Guð­mundur Frank­lín fari í fram­boð með Frjáls­lynda lýð­ræðis­flokknum í þing­kosningunum á næsta ári. Fari svo að hann nái sæti á Al­þingi er ljóst að hann mun ekki sam­þykkja þessa til­lögu þing­manna VG þegjandi og hljóða­laust.