Guðmundur Franklín lýsir yfir stuðningi við Eddu Falak: „YouGoGirl“

Forsetaframbjóðandinn og flokksleiðtoginn fyrrverandi Guðmundur Franklín Jónsson hefur lýst yfir opinberum stuðningi við áhrifavaldinn og hlaðvarpsstjórnandann Eddu Falak. Þetta kemur flestum á óvart enda hefur Guðmundur Franklín ekki sett hennar málefni á oddinn þegar hann hefur sóst eftir leiðtogahlutverkum í þjóðfélaginu.

Hann segir á Twitter að sumir kjósi að misskilja Eddu. „Getur það verið vegna þess að hún hefur rétt fyrir sér og þeir sömu séu hræddir við sannleikann? Edda Falak er sannkallaður trailblazer og trendsetter,“ segir Wall Street-kóngurinn fyrrverandi, hann bætir svo við: „YouGoGirl“

Edda virtist ekki undirbúin fyrir þessa yfirlýsingu: „Óvænt take dagsins,“ segir hún.

Edda er mjög áhrifamikil í netheimum og varð tíst hennar þar sem hún hvatti fólk til að nota veikindadaga sína til að forðast kulnun að miklu fjaðrafoki.

Sjá einnig: Þór­hild­ur Gyða and­leg­a og lík­am­leg­a bug­uð: „Mikl­ar lík­ur að ég hefð­i end­að í kuln­un“