Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins, varpar ljósi á afstöðu flokksins til hælisleitenda í ummælum í Facebook-hópnum Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn - Betra Ísland á Facebook og segir hana einfalda.
„Það verður engum passalausum einstaklingi hleypt inn í landið, þeir eru á ábyrgð flugfélagsins og viðkomandi flugfélag yrði gert að flytja þá til baka innan 48 stunda og bera kostnað af því sjálft, sem er sama system og í mörgum þjóðríkjum,“ skrifar Guðmundur.
Hann vill að konur og börn séu sett í forgang þegar farið er fram á alþjóðlega vernd. Auk þess segir Guðmundur að stefna flokksins sé að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Schengen-samkomulagið, sem auðveldar ferðalög milli þeirra ríkja sem þátt taka í því.
„Varðandi löglega innflytjendur, þá viljum við skoða hvort Ísland geti farið þá faglegu leið sem Ástralía, Kanada og Nýja Sjáland hafa valið sér í innflytjendamálum,“ segir hann. Löndin noti punktakerfi sem byggi á ýmsum viðmiðum líkt og aldri umsækjenda, tungumálakunnáttu, menntun, sérfræðikunnáttu auk þess sem starfstilboð frá atvinnurekanda skiptir miklu máli.
„Okkur finnst leið danskra sósíaldemókrata í hælisleitendamálum líka áhugaverð og myndum við vilja kanna hana eftir að ESB Evrópusambandið gefur grænt ljós á hana,“ skrifar Guðmundur að lokum. Stefna Dana í málefnum hælisleitenda hefur verið harðlega gagnrýnd, meðal annars af Loga Einarssyni formanni Samfylkingarinnar.