Guð­mundur Frank­lín kok­hraustur: „Ég er ekki að fara tapa þessum kosningum“

Guð­mundur Frank­lín Jóns­son, fram­bjóðandi til em­bættis for­seta Ís­lands, er kok­hraustur fyrir kosningarnar ef marka má við­tal við hann í Morgun­blaðinu í dag.

Skoðana­kannanir benda ein­dregið til þess að sitjandi for­seti, Guðni Th. Jóhannes­son, muni vinna af­gerandi sigur og hefur fylgi hans í könnunum hingað til mælst í kringum 90%. Þannig mældist fylgi Guðna tæp­lega 91% í niður­stöðum könnunar EMC Rann­sókna sem birtust fyrir sléttri viku.

Þrátt fyrir þetta er Guð­mundur kok­hraustur en fari svo að hann tapi kveðst hann ekki ætla aftur í fram­boð.

„Ég fer aldrei aftur í for­seta­fram­boð, en ef þjóðin vill sama mann þá segi ég bara guð blessi Ís­land. Ég mun hins vegar vinna kosningarnar,“ segir hann í við­talinu. Og þegar hann er spurður hvað hann muni gera ef það fer svo að hann tapi segir hann:

„Ég hef engar á­hyggjur af sjálfum mér. Ég hef meira og minna verið að koma að rekstri fyrir­tækja í gegnum tíðina. En ég er ekki að fara að tapa þessum kosningum.“