Guðmundur Franklín ekki sáttur við Heimi Má

Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins, er ekki sáttur við Heimi Má Pétursson, fréttamann á Stöð 2 og Bylgjunni.

Guðmundur vekur athygli á því á Facebook-síðu sinni að Heimir hafi verið að lesa fréttir á Bylgjunni klukkan átta í morgun um framboðslista Frjálslynda lýðræðisflokksins.

„Fréttamaðurinn er greinilega byrjaður í vinnunni fyrir kosningar,“ segir Guðmundur og bendir á að Heimir hafi titlað Sigurlaugu Gísladóttur, oddvita flokksins í Norðvesturkjördæmi, fótaaðgerðafræðing. Staðreyndin er hins vegar sú að Sigurlaug er verslunarmaður og rekur Húnabúð á Blönduósi.

„Síðan endaði hann á því að endurskíra flokkinn Frjálslyndaflokkinn, en flokkurinn heitir að sjálfsögðu Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn,“ segir Guðmundur.

Líklegt verður að teljast að Heimir Már hafi farið línuvillt þegar hann las upp oddvita flokksins því í 10. sæti flokksins í Norðausturkjördæmi - og því neðsta í kjördæminu - er einmitt fótaaðgerðafræðingur á lista. Sigurlaug er aftur á móti beint fyrir neðan í 1. sætinu í Norðvesturkjördæmi.