Guðmundur Andri Thorsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, segir farir sínar ekki sléttar eftir flugeldalætin í kringum áramótin. Óhjákvæmilegur fylgifiskur áramótanna virðist vera linnulaust sprengjuregn dagana fyrir og eftir gamlárskvöld.
Guðmundur Andri segir frá því á Facebook-síðu sinni í morgun að síðdegis í gær hafi flugeldum verið skotið á loft í nágrenni við heimili hans og dýrin á heimilinu orðið hrædd – eðlilega kannski.
„Það var mánudagur. Það var myrkur. Það var 3. janúar. Í fljótu bragði erfitt að átta sig á því hvert fagnaðarefnið væri. Eitt er nú að afplána sprengjuæðið kringum sjálf áramótin; vissulega mikið sjónarspil. En hitt er óboðlegt að menn haldi áfram að sprengja fram eftir janúar. Svei mér ef það ætti ekki bara að vera lögreglumál,“ segir Guðmundur Andri og eflaust margir sem geta tekið undir þetta.
Margir leggja orð í belg undir færslu Guðmundar. Í þeim hópi er Ólína Þorvarðardóttir sem einnig sat á þingi fyrir Samfylkinguna.
„Þetta er óþolandi. Lítil börn að reyna að sofa í barnavögnum. Venjulegt fólk í göngutúrum með dauðhrædda heimilishunda. Gamalt fólk hrasar og hrekkur við - fyrir nú utan allt annað ónæði af þessu. Svo má þetta ekki fyrir utan áramót og þrettándann - en það er eins og enginn vilji sé fyrir því að fylgja þeirri reglu eftir.“