Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir handleggjaágræðslu í Frakklandi í byrjun síðasta árs, hefur leyft fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast með bataferlinu.
Óhætt er að segja að ferlið hafi heilt yfir gengið vel enda ýmislegt hægt þegar maður hefur jákvæðnina að vopni eins og Guðmundur Felix.
Hann deildi skemmtilegu myndbandi með fylgjendum sínum á Instagram í gær en þá handlék hann farsíma í fyrsta sinn á ævinni.
„Ég hef ekki mikið að segja en mig langaði að deila sérstöku augnabliki í lífi mínu þar sem ég held á farsíma í fyrsta skipti á ævinni. Ég held á honum með hægri hendi og þetta er dálítið skrítið. Ég hefði mögulega getað gert þetta fyrr en þetta er í fyrsta skipti sem ég prófa. Svo er spurning hvernig ég stöðva upptökuna,“ segir Guðmundur Felix og hlær en Fréttablaðið vakti fyrst athygli á þessu.
„Ég veit ekkert hvernig ég fer út þessu, ég er næstum því fimmtugur og er að halda á farsíma í fyrsta sinn, þá ekki meðtöldum gömlu farsímunum á tíunda áratugnum sem líktust ferðatöskum,“ segir hann meðal annars.