Guðmundur Felix magnaður: Sjáðu hvað hann getur núna gert

Bati Guðmundar Felix Grétarssonar, sem gekkst undir handleggjaágræðslu í Frakklandi í janúar síðastliðnum, hefur verið magnaður.

Þó að bataferlið standi enn yfir má segja að aðgerðin hafi heppnast frábærlega eins og myndir og myndbönd Guðmundar á Instagram eru til vitnis um.

Í nýju myndbandi á Instagram-síðu sinni má til dæmis sjá hann skoða vörur í verslun í Frakklandi. Eins og sést á myndbandinu hér að neðan getur Guðmundur Felix auðveldlega lyft upp hægri handleggnum til að skoða betur þær vörur sem fyrir augu ber. Það er í raun magnað að aðeins átta mánuðir séu liðnir síðan handleggirnir voru græddir á hann.

Þá birti Guðmundur myndband af sér í Story á Instagram í gær þar sem mátti sjá hann svamla um í sjónum í góða veðrinu undan ströndum Frakklands. Það er eitthvað sem Guðmundur gat aðeins látið sig dreyma um áður en hann gekkst undir ágræðsluna.

Hægt er að fylgjast með Guðmundi Felix á Instagram og hvetjum við sem flesta til að gera það, enda jákvæðnin og húmorinn ávallt í aðalhlutverki.