Guðmundur Felix engum líkur: Notar háþrýstidælu og fer létt með það – Sjáðu myndbandið

Guðmundur Felix Grétarsson, maður ársins 2021 hér á landi að margra mati, heldur áfram að sýna frá bataferli sínu eftir að hafa gengist undir tvöfalda handaágræðslu í janúar 2021.

Guðmundur Felix heldur úti Instagram-síðu þar sem hann sýnir fylgjendum sínum frá daglegu lífi sínu. Hann hefur tamið sér magnaða jákvæðni og mættu vafalaust margir taka hann sér til fyrirmyndar.

Á myndbandi sem hann birti í gær má sjá hann nota háþrýstidælu á handrið fyrir utan heimili sitt í Frakklandi. Eins og sést á myndbandinu fer Guðmundur létt með það.

Í athugasemdum við myndbandið segist Guðmundur Felix hafa nánast fulla tilfinningu í báðum handleggjum. Fjölmargir hafa skrifað athugasemdir við myndbandið og sent honum góðar kveðjur.

„Þú ert svo magnaður. Var að lesa bókina. Var mjög hrifin af henni og orðlaus hvað þú hefur gert mikið,“ segir í einni kveðjunni.