Guðmundur Felix Grétarsson birti býsna magnaða mynd á Facebook-síðu sinni í gær. Eins og alþjóð veit gekkst hann undir handleggjaágræðslu í Frakklandi fyrir um 16 mánuðum og hefur bataferli hans gengið vonum framar.
Guðmundur hefur leyft fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að fylgjast með daglegu lífi sínu og sigrum, bæði stórum og litlum, frá því að hann gekkst undir aðgerðina.
Myndin sem hann birti í gær er í raun einföld en samt mögnuð. Hún sýnir hendurnar á honum og blöðrur sem hann fékk á þær eftir daglegt amstur. Yfirleitt teljast það ekki gleðitíðindi að fá blöðrur á hendurnar en hjá Guðmundi Felix merkir það að hlutirnir virka eins og þeir eiga að virka.
„Enn einn sigurinn, fyrstu blöðrurnar mínar,“ sagði Felix við myndina sem má sjá hér að neðan.