„Við systkinin erum alin upp við að draumar og innsæi væri mikilvægur hlutur að læra inn á og ég er gífurlega þakklátur fyrir það núna,“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson, leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar Berdreymi sem frumsýnd var í kvikmyndahúsum um helgina.
Guðmundur var í athyglisverðu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins um helgina þar sem hann ræddi meðal annars um andleg málefni, berdreymi og innsæi sem eru ákveðið stef í myndinni. Í viðtalinu segir hann að þessi atriði hafi alltaf fylgt honum og nefnir hann býsna áhugavert dæmi um slíkt.
„Mig hefur dreymt fyrir skýrum hlutum en það þýðir ekki að allir draumar hafi þýðingu. Skýrasta svona dæmið er líklega þegar ég var nýbúinn með Hjartastein og vaknaði upp klukkan fjögur um nótt með þessa sterku tilfinningu um að ég yrði að hringja í mömmu.“
Guðmundur segist hafa túlkað tilfinninguna sem órökrétta enda mið nótt og því hafi hann reynt að sofna bara aftur en ekki tekist.
„Þetta togaði í mig. Ég hringdi svo í mömmu sem svaraði ekki svo ég reyndi aftur að sofna án árangurs. Á endanum fór ég út í bíl og keyrði heim til hennar.“
Þegar Guðmundur kom að húsi móður sinnar um blánóttina sá hann hvernig rauk úr kjallaranum.
„Þá hafði hitavatnsrör sprungið og heitt vatn flætt um allt. Ég vakti þá mömmu sem var steinsofandi. Það hefði allt eyðilagst ef ég hefði ekki komið. Ég er ekki að vakna um miðja nótt og finna svona án ástæðu.“