„Svarið er já. Ég vil holskeflu fólks á flótta til Íslands. Ganga eins langt og við getum,“ segir Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, á Twitter-síðu sinni.
Guðmundur vísar þarna í mál egypsku fjölskyldunnar sem farin er í felur hér á landi. Til stóð að framfylgja brottvísun fjölskyldunnar í morgun en eins og Hringbraut greindi frá finnst fjölskyldan ekki. Kom stoðdeild lögreglunnar að tómum kofanum í morgun og er ekki vitað um dvalarstað fjölskyldunnar.
Mál fjölskyldunnar hefur vakið mikla athygli og vangaveltur um stöðu flóttamanna hér á landi, þá sér í lagi barna. Guðmundur segir að Íslendingar ættu að setja sér markmið um stóraukna menningarlega fjölbreytni.
„Vinna jafnframt bug á óheilbrigðri einsleitni og hamlandi fámenni. Sé að margir hræddir eru að spyrja í athugasemdum. Segi já,“ segir Guðmundur.
Þóra Tómasdóttir, rithöfundur og fjölmiðlakona, tekur undir þetta hjá Guðmundi:
„Sammála. Opna og leyfa fólki að spreyta sig á því að búa hér. Koma samfélaginu upp í sjálfbæra stærð innan nokkurra ára, 2-3 milljónir helst.“
Eins og að framan greinir er fjölskyldan farin í felur og er óvíst um dvalarstað hennar. Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, segir á Twitter: „Það er eitthvað svo absúrd til þess að hugsa að lítil börn séu í felum fyrir íslenskum stjórnvöldum.“
Svarið er já. Ég vil holskeflu fólks á flótta til Íslands. Ganga eins langt og við getum. Setja okkur markmið um stóraukna menningarlega fjölbreytni. Vinna jafnframt bug á óheilbrigðri einsleitni og hamlandi fámenni. Sé að margir hræddir eru að spyrja í athugasemdum. Segi já.
— Guðmundur Gunnarsson (@gummigunnars) September 16, 2020
Það er eitthvað svo absúrd til þess að hugsa að lítil börn séu í felum fyrir íslenskum stjórnvöldum.
— Brynhildur Bollad. (@brynhildurbolla) September 16, 2020