Guðmundur bendir á það sem gleymdist að nefna í tilkynningu Stöðvar 2

Guðmundur Jóhannsson, samskiptastjóri Símans, skýtur á samkeppnisaðila Símans, Stöð 2, í færslu á Twitter-síðu sinni.

Tilkynning var send fjölmiðlum í morgun þess efnis að streymisveitan Stöð 2+ yrði án auglýsinga frá og með 1. mars næstkomandi.

„Við tökum þessa tímamótaákvörðun til þess að auka upplifun áskrifenda okkar og trúum því að þeir taki vel í þessa breytingu,“ var haft eftir Þórhalli Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjölmiðla Sýnar. Þórhallur hafði þó engin orð um það að áskriftin að Stöð 2+ myndi einnig hækka frá 1. mars næstkomandi.

Guðmundur bendir á þetta og deilir frétt Vísis um breytinguna.

„Það sem þessi viðskiptafrétt milli tengdra aðila gleymir að segja er að verðið hækkar líka um 25%.“

Þetta er allt satt og rétt hjá Guðmundi því samkvæmt tilkynningu á vef Stöðvar 2 hækkar áskrift Stöðvar 2+ um mánaðamótin úr 3.990 krónum í 4.990 krónur. Aðrar áskriftir hækka að vísu líka, áskrift fyrir Stöð 2 fer úr 7.990 kónum í 8.990 krónur og þá hækka Skemmtipakkinn, Stóripakkinn og Risapakkinn einnig um 1.000 krónur.