Guðmundur beitti ofbeldi eftir þungbæra reynslu: Leitaði sér hjálpar og er frjáls í dag

„11 ára gamall var ég beittur kynferðisofbeldi, það ásamt öðrum áföllum þróaði mig smám saman úr þolanda yfir í geranda ofbeldis,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnuður á Twitter-síðu sinni.

Umræðan um ofbeldi hefur verið hávær á samfélagsmiðlum undanfarna daga og má ætla að umræðan um meint ofbeldi fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar, sem nokkuð hefur verið fjallað um, sé kveikjan að færslu Guðmundar.

„Ég hélt lengi að afbrýðisemin og brjálæðisköstin mín væru ekki andlegt ofbeldi en leitaði mér loks hjálpar fyrir nokkrum árum og er frjáls í dag,“ segir Guðmundur og bætir við:

„Ég hef tjáð mig um þetta áður en langar í ljósi umræðna að vekja athygli á því aftur og vona að það geti hjálpað fleiri strákum að axla ábyrgð og leita sér aðstoðar. Þegar ég áttaði mig loks á hegðunarmynstrinu og skyldi hvaðan það kom hvarf þetta ótrúlega fljótt.“

Óhætt er að segja að færsla Guðmundar hafi vakið mikla athygli og hefur hann fengið mikið hrós fyrir að opna sig um málið.