Guðmundur átti að fá pyndingabætur en ríkið er tregt við að borga: Eyddi tíu sólarhringum í ó­mann­úð­legum aðstæðum

Lög­maður Guð­mundar Guð­laugs­sonar hefur óskað eftir því að gert verði fjár­nám hjá ríkis­sjóði Ís­lands. Það á nefnilega eftir að borga Guðmundi skuld. En Hérasðdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í mars þess efnis að ríkið ætti að borga Guðmundi 23 milljónir króna í bætur.

Fréttablaðið greinir frá þessu og fjallar ýtarlega um málið.

Ástæðan fyrir bætunum er sú að Guð­mundur var hand­tekinn og vistaður í 10 sólar­hringa við ó­mann­úð­legar að­stæður á lög­reglu­stöðinni við Hlemm árið 2010. Þetta þótti vera brot við banni á pyndingum og þotti vanvirðandi meðferð.

Vistin reyndist Guð­­mundi mjög þung­bær og hafði í för með sér al­var­­legar heilsu­fars­­legar af­­leiðingar fyrir hann.

Ástæðan fyrir því að hann var handtekinn tengist því rann­sókn lögreglu á fíkni­efna­smygli, en sonur Guð­mundar var einn sak­borninga málsins. Grunur lög­reglu kviknaði um að­komu Guð­mundar sjálfs að málinu og var hann því hand­tekinn.

Það hefur ekki gengið vel hjá Guðmundi að krefja ríkið um bæturnar sem honum hafa verið dæmdar, en hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.