Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, mun víkja sæti fyrir Þórunni Sveinbjarnardóttur, formanni BHM, sem verður í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi.
Fréttablaðið greindi frá þessu í morgun og sagði að tilkynningar væri að vænta í dag. Nú hefur Guðmundur Andri staðfest tíðindin á Facebook-síðu sinni. Hann er oddviti flokksins í kjördæminu en verður í öðru sæti á lista flokksins fyrir kosningarnar í haust.
„Það er mikil upphefð að setjast á þing. Maður er valinn sem fulltrúi fyrir stefnu og flokk sem þúsundir styðja. Þegar ég var beðinn um það árið 2017 að freista þess að endurvinna þingsæti í Kraganum fyrir Samfylkinguna sló ég til. Það tókst með samstilltu átaki þeirra sem gátu ekki hugsað sér að rödd jafnaðarmanna hljómaði ekki á þinginu. Það munaði hársbreidd að það tækist að vinna annað sætið líka,“ segir Guðmundur Andri.
Hann segir að þegar dró að kosningum hafi hann orðið þess áskynja að ýmsir sóttust eftir því að leiða lista flokksins í kjördæminu, sem eðlilegt er.
„Ég lét þess getið við Uppstillingarnefnd að ég væri til í að sitja áfram, til þjónustu reiðubúinn; ég teldi mjög líklegt að við fengjum tvo þingmenn næst og sagðist tilbúinn í að berjast fyrir því að endurheimta annað sætið, eins og ég hafði endurheimt fyrsta sætið síðast. Fréttablaðið segir það fáheyrt í frétt í dag að oddviti færi sig um sæti og virðist telja það firn mikil að rúmlega sextugur karl standi upp fyrir sér yngri konu. Það held ég að sé ofmælt; minni til dæmis á það þegar Ögmundur Jónasson stóð upp fyrir Guðfríði Lilju í Kraganum.“
Guðmundur Andri segir að Þórunn muni leiða listann og það muni hann styðja. Þórunn sat á þingi í um áratug, frá 1999 til 2011 og var umhverfisráðherra frá 2007 til 2009.
„Hún hefur verið öflugur málsvari launafólks undanfarin ár en var áður þingmaður kjördæmisins og ráðherra. Hún verður öflug í fyrsta sæti. Og ég verð öflugur í öðru sæti. Að ekki sé nú talað um unga fólkið sem kemur svo í næstu sætum á eftir,“ segir Guðmundur Andri.