Guð­mundur Andri segir þetta hafa sár­vantað í Ver­búðina: „Meiri­háttar hand­vömm“

Rit­höfundurinn Guð­mundur Andri Thors­son er á­nægður með Ver­búðina. Honum fannst samt eitt sár­lega vanta, eins og hann kemur inn á í pistli sem birtist í Frétta­blaði dagsns.

„Ekki virðist hafa hvarflað að höfundum að ó­­maksins vert gæti verið að reyna að ná vest­firskum blæ­brigðum í tungu­taki, frösum og á­herslum, og láta jafn­vel ein­hverja tala með þeim fram­burði sem enn lifir vestra: að segja ‚langur‘ en ekki ‚lángur‘ eins og aðrir lands­­menn,“ skrifar Guð­mundur.

„Mér fannst meiri­háttar hand­vömm að láta per­­sónu­­gerving Sam­herja ekki tala með þeim grjót­hörðu lok­hljóðum sem eru svo stór þáttur af per­­sónu fyrir­­­myndarinnar. Raunar minnti við­komandi per­­sóna í Ver­búðinni meira á Jón Ás­­geir í Bónus (næsta sería? og Smári blaða­­maður allt í einu orðinn for­­stjóri og kominn í einka­þotu­liðið?) en Þor­­stein Má, sem kann að vera snjallt.“

Pistill Guðmundar í heild sinni í Fréttablaðinu.