Guðmundur Andri Thorsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, og Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, tókust á á Facebook-síðu þess fyrrnefnda vegna færslu hans um málefni Eflingar.
Í færslu sinni sagðist Guðmundur Andri hafa dáðst af Sólveigu Önnu fyrir það hvernig hún hefur notað rödd sína, mælsku og sannfæringarkraft til að tala máli láglaunafólks. Um leið hafi hann skynjað það að hún hafi sínar takmarkanir sem forystumaður fyrir fjölmennum samtökum.
„Öll þau fjögur ár sem ég sat á þingi funduðum við þingmenn Samfylkingarinnar reglulega með forystufólki verkalýðshreyfingar og launafólks en hún treysti sér aldrei til þess að hitta okkur – og var ýmsu borið við – og ekki fór á milli mála að henni var í nöp við „helvítis kratana“, og greinilegt að litið var á okkur í Sf sem höfuðóvininn þegar framboð Sósíalista fór af stað,“ sagði Guðmundur Andri.
Hann bætti við að honum finnist með öllu ótækt ef gera eigi grýlur úr starfsfólki Eflingar sem hrakið hafi Sólveigu úr starfi.
Gunnar Smári skrifaði undir færslu Guðmundar: „Er þér ekkert heilagt í þessum and-kommúnisma þínum?“
Guðmundur Andri brást við með eftirfarandi athugasemd: „Þessi athugasemd er þér nú ekki samboðin Gunnar Smári. Vangavelta um kosti og takmarkanir Sólveigar ásamt vægri áminningu um réttindi starfsfólks Eflingar er ekki „andkommúnismi“.“