Guð­mundur Andri harð­orður: „Þetta mál er mikil hneisa fyrir Ríkis­út­varpið“

Guð­mundur Andri Thors­son, fyrr­verandi Al­þingis­maður og rit­höfundur, er allt annað en sáttur með Ríkis­út­varpið.

Hann deilir í dag frétt Frétta­blaðsins þar sem kemur fram að auka­leikarar sem komu að því fengu lítið greitt fyrir vinnu sína eða jafn­vel greitt með inn­eignar­nótum í Bónus. Þá fengu söngvarar sem fram komu í at­riði um konu sem gleymdi að koma með fjöl­nota poka í Bónus einungis 5000 krónur greiddar fyrir þátt­töku sýna.

Sam­kvæmt kjara­samningi FÍH við Ríkis­út­varpið hefði hver og einn þeirra átt að fá 50 þúsund krónur greiddar.

„Þetta mál er mikil hneisa fyrir Ríkis­út­varpið og með ó­líkindum að sjá það við­horf hjá fram­leiðanda skaupsins að söng­at­riðið hafi veitt söngvurunum tæki­færi til að vekja á sér at­hygli, sem dugi þá til að sletta fimm þúsund kalli í hvern þessa at­vinnu­manna. Slík við­horf eiga hvorki að sjást né heyrast – og aldrei í tengslum þátta­gerð hjá RÚV; hvað þá þegar um er að ræða aðal­skemmti­þátt ársins – og hvað þá þegar um að ræða vin­sælasta at­riðið í þeim þætti,“ skrifar Guð­mundur.