Guðmundur Andri fór út í búð og leggur til breytingar við sjálfsafgreiðslukassana

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður og rithöfundur, leggur til að þær verslanir sem bjóða upp á sjálfsgreiðslukassa hugi betur að þægindum fyrir viðskiptavini sína. Það eru eflaust margir sem taka undir þetta hjá Guðmundi.

Í færslu á Facebook-síðu sinni segir þingmaðurinn:

„Nú veit ég að einhver hugsar: „Það vildi ég hafa áhyggjurnar yðar frú Sigríður“, eða hvernig sem frasinn var nú ... Ég var sem sagt í búð. Og var að afgreiða mig sjálfur – skanna strikamerkið og þetta allt sem maður er orðinn alveg ágætur í að gera sjálfur; og tel það ekki eftir mér. Bara eitt sem ég myndi vilja sjá: að hægt væri að hækka og lækka borðið þar sem maður setur skönnuðu vörurnar áður en maður setur þær í pokann,“ segir hann.

Hann segir að fyrir mann eins og hann, sem er um 180 sentímetrar og með krónískt brjósklos sé þetta fullmikið bogr. „Mætti ekki hugsa sér fótstig eða eitthvað þvíumlíkt?,“ spyr hann.

Facebook-vinir Guðmundar Andra taka margir undir þetta og segja það engu líkara en að kassarnir séu hannaðir fyrir lágvaxið fólk.