Guð­mundi var sagt að koma sér í mjúkinn hjá Þor­steini Má til að eiga séns

Guð­mundur Gunnars­son, fyrr­verandi bæjar­stjóri á Ísa­firði og fyrr­verandi frétta­maður á RÚV, segist hafa fengið þau skila­boð þegar hann byrjaði í frétta­mennsku á Akur­eyri að koma sér í mjúkinn hjá Þor­steini Má Baldvinssyni, for­stjóra Sam­herja.

Guð­mundur nam fjöl­miðla­fræði við Há­skólann á Akur­eyri áður en hann réðst til starfa hjá RÚV. Eitt stærsta frétta­mál vikunnar varðar þátt sem Sam­herji lét fram­leiða en í honum var látið að því liggja að Helgi Seljan, frétta­maður RÚV, hefði falsað gögn árið 2012. RÚV og Helgi höfnuðu þessum á­sökunum strax.

„Mark­miðið með þessum drullu­mokstri er að sverta mann­orð öfl­ug­asta rann­­sókn­ar­blaða­­manns lands­ins og hrella fjöl­­miðla,“ sagði í yfir­lýsingu sem Þóra Arnórs­dóttir og Helgi Seljan sendu frá sér.

Guð­mundur, sem lét af störfum sem bæjar­stjóri Ísa­fjarðar fyrr á þessu ári, skrifar at­hyglis­verða færslu á Twitter þar sem hann segir:

„Þegar ég byrjaði í frétta­mennsku á Akur­eyri var mér sagt að ef ég ætlaði að eiga ein­hvern séns í nýja djobbinu þá yrði ég að koma mér í mjúkinn hjá Þor­steini Má. Þetta var fyrir 15 árum og heil­ræðin komu frá reynslu­mestu frétta­mönnunum á svæðinu.“