Guðmundi Franklín líst ekkert á blikuna: „Ef þetta verður gert hér á landi – verður allt brjálað?“

Guðmundi Franklín Jónssyni, fyrrverandi forsetaframbjóðanda og stofnanda Frjálslynda lýðræðisflokksins, lýst illa á þá þróun sem er að verða í kringum okkur vegna kórónuveirunnar.

Guðmundur gerir nýlegar fréttir frá Þýskalandi að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Þjóðverjar tilkynntu á dögunum að þeir ætluðu sér að taka upp strangari samkomutakmarkanir sem beinast að óbólusettum. Munu breytingarnar þýða að þeir sem eru óbólusettir gegn veirunni verður meinaður aðgangur að nánast allri þjónustu og almenningsrými nema til að sækja sér nauðsynlega þjónustu.

Guðmundi lýst vægast sagt illa á þetta og segir:

„Óbólusettir teknir úr umferð í Þýskalandi - Þetta finnst mér hræðilegt og það að fólk fái ekki að ráða því sjálft hvað það gerir við líkama sinn er enn hræðilegra. Hvert erum við komin? Ef þetta verður gert hér á landi - verður allt brjálað? Eða hlýðir fólk ESB skilyrðislaust? Við getum að lært af sögunni, en það er líka hægt að nota söguna sem leiðbeiningar!“