Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig handleggi í Frakklandi í ársbyrjun, segist vera gríðarlega þakklátur fyrir góðu viðtökur sem ævisaga hans, 11.000 volt hefur fengið.
Blaðakonan reynda, Erla Hlynsdóttir, skrifaði bókina sem var nokkur ár í vinnslu og hefur hún fengið góða dóma frá gagnrýnendum. Þá varð hún í 3. sæti yfir bestu ævisögurnar hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Guðmundur Felix segist þakklátur fyrir það.
„Þetta er gríðarlegur heiður og gríðarlegur léttir vegna þess að það var ekkert auðvelt að setja líf sitt svona á blað. Ég er að deila allskonar hlutum sem ég vissi ekkert hvernig yrði tekið,“ sagði Guðmundur Felix í myndbandi sem hann birti á Facebook-síðu sinni. Þar sást hann með bókina milli handanna og augljóst að hans góða bataferli heldur áfram.
Guðmundur Felix hvetur þó þá sem hafa áhuga á að tryggja sér eintak til að gera það sem fyrst. Því ef bókin selst upp fyrir jólin sé ekki víst að önnur prentun náist fyrir jól.