„Þó ég sé ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni þá veit ég muninn á réttlæti og óréttlæti,“ segir Guðmundur Óskarsson, matreiðslumaður sem búsettur er í Danmörku.
Guðmundur lætur reglulega til sín taka á Facebook-síðu Sósíalistaflokks Íslands og hefur hann til að mynda gagnrýnt lífeyriskerfið á Íslandi í mörg ár. Pistill sem hann skrifaði um helgina hefur vakið talsverða athygli en þar fjallar hann um óréttlæti makalífeyris.
„Svo ánægð erum við með hvort annað að við munum standa við heitið sem við gáfum við giftinguna, „í blíðu og stríðu, þar til dauðinn aðskilur okkur.“
Guðmundur tekur fram að hann hafi verið á sjónum í sautján ár og á meðan hafi eiginkona hans að mestu hugsað um börnin þeirra fjögur auk þess að vinna úti eins og mögulegt var. Þungi heimilisins hafi hins vegar verið á hennar herðum meðan hann var á sjónum.
„Ég gat verið áhyggjulaus úti á sjó því vandfundinn er annar eins dugnaðarforkur sem hún er. Vegna skyldna hennar á heimilinu hefur hún þrisvar sinnum minni lífeyrisréttindi en ég á Íslandi.“
Guðmundur segir að samkvæmt læknaskýrslum sé gert ráð fyrir að hann verði „gróðursettur“ á undan henni og kemur hann þá að óréttlætinu, að hans mati.
„Hún fær að sjálfsögðu allt sem við höfum skapað sameiginlega í þau 43 ár sem við höfum búið saman nema lífeyrisréttindin. Eftir fráfall mitt þá fær hún óskertan makalífeyrir í 2 ár og svo verður hún að lifa á sínum lífeyrir,“ segir Guðmundur sem spyr:
„AF HVERJU FÆRAST RÉTTINDI MÍN EKKI YFIR Á HANA VIÐ FRÁFALL MITT?“
Hann veltir fyrir sér hvort mögulega sé um að ræða brot á eignarrétti stjórnarskrárinnar og segist vel vita að sumir gifti sig oftar en einu sinni og þá verði flækist málið þegar kemur að skiptingu réttinda.
„En við megum aldrei gefast upp á réttlætinu bara af því það er flókið. Ég trúi ekki að fólk vilji ástunda óréttlæti af því réttlæti er flókið.“
Færsla Guðmundar hefur vakið talsverð viðbrögð og tekur Katrín Baldursdóttir, sem skipar efsta sætið á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík suður, undir hana. Hún segir: „Ég er alveg sammála hér og þetta sýnir vel hversu framlag kvenna og strit er lítils metið!“