Guðlaugur vill að Einar slíti viðræðum | Sjálfstæðisflokkurinn lagður í einelti

„Einar Þorsteinsson, sem virðist koma til dyranna eins og hann er klæddur, á að stöðva viðræðurnar við gamla meirihlutann og láta hann horfast í augu við þá pattstöðu sem flokkarnir sjálfir bera ábyrgð á eftir að hafa rottað sig saman,“ segir Guðlaugur Ö. Þorsteinsson rekstrarverkfræðingur í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Í grein sinni veltir Guðlaugur fyrir sér niðurstöðum sveitastjórnarkosninganna í maímánuði og bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið 35% atkvæða í kosningunum 2018. Þá hafi gamli meirihlutinn í raun verið kosinn burt með undraverðum hætti hafi tekist að halda lífi í honum með aðstoð Viðreisnar.

„Árið 2018, eins og nú, stokkuðust spilin þannig að sumir flokkar neituðu öllu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og útilokuðu þar með ýmsa möguleika á samstarfi í borginni og um leið þá fjölbreytni í borgarstjórn sem fjölgun borgarfulltrúa átti að hafa í för með sér. Eftir kosningarnar 14. maí sl. eru þessir útilokunarflokkar á Sjálfstæðisflokkinn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn, flokkar sem leggja Sjálfstæðisflokkinn í eins konar einelti, en einelti er ekkert annað en ofbeldi og má þannig segja að þessir flokkar stundi í raun ofbeldi gegn lýðræðinu,“ segir hann og kallar eftir því að við þessu verði brugðist.

„Borgarpólitíkin hefur skorið sig úr að þessu leyti m.v. önnur sveitarfélög og virðist hreinlega vera í tísku að vera á móti Sjálfstæðisflokknum. Samfylkingin hefur nú bætt um betur og myndað bandalag við flokka í föllnum meirihluta, að undanskildum Vinstrigrænum, til þess eins að útiloka eða blokkera Sjálfstæðisflokkinn, þannig að það fáist ekki heyrt í stærstu röddinni í Reykjavík og það í annað skiptið í röð. Hvert er lýðræðið í Reykjavík komið?,“ spyr hann.

Guðlaugur kallar eftir því að Einar stöðvi viðræðurnar við gamla meirihlutann.

„Ljóst er að Dagur B. virðist ekki skynja sinn vitjunartíma þar sem honum og hans stefnu var hafnað bæði í kosningunum árið 2018 og aftur nú árið 2022. Hann ætlar eftir sem áður að reyna að hanga á valdinu eins og hundur á roði og virðist tilbúinn að beita öllum brögðum til þess að völdin renni honum ekki úr greipum. Niðurstöður kosninganna sýna aftur á móti að kallað var eftir breytingum í borginni.“