Guðlaugur Victor Pálsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og atvinnumaður í Þýskalandi, kveður móður sína á hjartnæman hátt í bréfi sem hann birti á Instagram-síðu sinni. Móðir hans, Ásta Marta Róbertsdóttir, lést þann 27. nóvember síðastliðinn og verður útför hennar gerð frá Grafarvogskirkju á morgun.
„Í sannleika sagt þá vissi ég ekki hvaða merkingu orðin „ég sakna þín“ hafa fyrr en fyrst núna. Ég var ekki tilbúinn að kveðja, ég bar þá sterku von í brjósti mér að þú kæmir aftur og næðir bata. Sú von er nú farin og það er sárt,“ segir Guðlaugur meðal annars.
Guðlaugur var gestur hlaðvarpsþáttar Sölva Tryggvasonar í sumar þar sem hann ræddi uppvaxtarár sín og baráttu móður hans við áfengis- og fíknisjúkdóm. Guðlaugur var ungur að árum þegar hann þurfti að bera ábyrgð á fjölskyldulífinu en á sama tíma var hann í hópi efnilegustu knattspyrnumanna landsins. Undanfarin misseri hefur Guðlaugur Victor átt frábæru gengi að fagna með íslenska landsliðinu og er hann, að öðrum ólöstuðum, kominn í hóp lykilmanna liðsins.
„Mamma er mamma, mamma er Ásta, en fíkillinn er fíkillinn, þetta er ekki mamma mín,“ sagði Guðlaugur meðal annars í þætti Sölva og bætti við að hann sæi ekki eftir neinu. „Af því að ef ég lít til baka yfir öll þessi ár, þá er ég sá sem ég er í dag út af mínu lífi. Ég get ekki séð eftir hlutum af því að ég er ánægður í eigin skinni í dag.”
Ásta var 47 ára þegar hún lést og segir Guðlaugur Victor í bréfi sínu að hún hafi barist og barist og reynt og reynt.
„Þú þráðir ekkert heitara en að koma til baka og vera til staðar fyrir börnin þín og barnabörn. Axel var heppinn að hafa þig í sínu lífi. Þú elskaðir hann mikið og hann elskaði þig. Ég lofa því að hann mun alltaf muna eftir þér. Þú gerðir þitt besta, ég veit þú gerðir það.
Lífið var ekki alltaf auðvelt eða sanngjarnt en ég vil að þú vitir að ég er svo stoltur af þér. Þú varst góð móðir og þú varst minn besti vinur. Síðustu ár hafa verið erfið, en þrátt fyrir þessa erfiðu tíma, hefði ég ekki viljað eiga aðra mömmu. Góðu minningarnar munu lifa það sem eftir er. Ég er sá sem ég er vegna þín og ég mun halda áfram að vinna að því að verða besta útgáfan af sjálfum mér. Eins og þú vildir.“
Guðlaugur Victor segir að móðir hans hafi verið með stórt hjarta, góð manneskja sem vildi öllum vel. „Þú sýndir öllum sem þú kynntist umhyggju og hlýju. Mér þykir fyrir því að hafa ekki alltaf skilið það sem þú gekkst í gegnum en núna skil ég það. Ég fyrirgef þér allt og vona að þú fyrirgefir mér. Ég vil trúa því að þú hafir fundið friðinn og sért á betri stað núna.“