Guð­laugur tjáir sig um að vera skot­mark meintra hryðju­verka­manna: „Til­finningin auð­vitað ó­þægi­leg“

Guð­laugur Þór Þórðar­­son, um­­hverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, segir að það hafi verið mjög ó­­þægi­­leg til­­finning að fá fréttir af því að mennirnir sem sitja í gæslu­varð­haldi vegna gruns um að leggja á ráðin um hryðju­­verk hafi rætt um að myrða hann.

Frétta­blaðið náði tali af Guð­laugi Þór eftir ríkis­­stjórnar­fund í morgun þar sem hann fór yfir málið.

Guð­laugur segir að lög­regla hafi sett sig í sam­band við hann um leið og málið kom upp og upp­­­lýst hann um stöðuna.

Hvernig var til­­finningin að fá fréttir af þessu?

„Hún var auð­vitað mjög ó­­þægi­­leg. Það er ekkert hægt að orða það öðru­­vísi. Það fyrsta sem kemur upp er hvernig maður út­­skýrir þetta fyrir fjöl­­skyldunni. Það er auð­vitað erfitt, en hins vegar voru við­­brögð lög­­reglu mjög fag­­leg og ég fékk allar þær upp­­­lýsingar sem hún vissi á þeim tíma­­punkti.“

Guð­laugur Þór segir að vissu­­lega hafi honum verið brugðið en málið snúist þó ekki bara um hann eða hans fjöl­­skyldu.

„Þetta snýst um alla á Ís­landi. Við viljum ekki sjá svona og við þurfum auð­vitað að tryggja það að við gerum allt hvað við getum – og nálgumst hlutina með yfir­­veguðum hætti – til að Ís­land verði á­­fram eins og það er; öruggt sam­­fé­lag sem okkur líður vel í.“

Hvað finnst þér um að svona mál séu að koma upp hér á landi?

„Auð­vitað er það þannig að við erum ekki ey­land þó við séum ey­land. Það sem gerist annars staðar getur gerst hér. Ég held að sé mjög mikil­­vægt – og ég legg á það mikla á­herslu – að við nálgumst þetta af yfir­­vegun og skyn­­semi, öll mál, en sér­­stak­­lega svona mál, því við megum alls ekki láta ótta og hræðslu, svo ég tala nú ekki um sterkari nei­­kvæðar til­­finningar, ná tökum á okkur.“

RÚV greindi frá því að mennirnir hafi talið að Guð­laugur væri enn utan­­­ríkis­ráð­herra. Að­­spurður hvort hann gæti gert sér í hugar­lund hvers vegna mennirnir hafi rætt um hann sér­­stak­­lega, sagði Guð­laugur Þór:

„Ég geri ráð fyrir að þegar svona mál koma upp er það vegna þess sem stjórn­­mála­­maðurinn hefur gert eða sagt. Það liggur alveg fyrir hvað ég stend fyrir í stjórn­­málum og ég hef talað á al­­þjóða­vett­vangi fyrir réttindum og frelsi fólks. Kannski var það eitt­hvað sem mönnum hugnaðist ekki, en ég mun að sjálf­­sögðu halda því á­­fram.“