Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, segist ekki eiga í innbyrðisátökum um völd í Sjálfstæðisflokknum við Bjarna Benediktsson, formann flokksins og fjármálaráðherra.
Þetta kemur fram í hlaðvarpi Harmageddon þar sem Guðlaugur er gestur. Þar var hann spurður út í þær fullyrðingar að hann hefði orðið ævareiður yfir því að hafa verið gerður að umhverfisráðherra.
„Ég hafna því að hafa orðið ævareiður og reiður yfir höfuð. Þetta eru allt saman kostir og gallar. Ég man hinsvegar ekkert eftir því að menn hafi talað um það að það væri stórkostlegt þegar ég var gerður að utanríkisráðherra. Ég man ekki að neinn hafi sóst eftir því en hinsvegar var það mjög vinsælt eftir þau fimm ár sem ég var búinn að vera þar og það er bara gott og ég er mjög stoltur af þeim árangri sem ég náði þar.“
En segðu okkur aðeins frá þessari valdabaráttu innan Sjálfstæðisflokksins á milli þín og Bjarna Benediktssonar?
„Fólk verður að hafa eitthvað til að skrifa um,“ svarar Guðlaugur og segir eina deilumál þeirra snúast um enska boltann þar sem Bjarni styðji þar afspyrnu slappan fótboltaklúbb.