Guðlaugur Þór búinn að velja sér aðstoðarmann: Ræðumaður Íslands sem harmaði að hafa boðið menntskælingum bjór

Svo virðist sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, sé búinn að velja sér aðstoðarmann. Samkvæmt vef stjórnarráðsins er Steinar Ingi Kolbeins skráður sem aðstoðarmaður ráðherra á skrifstofu umhverfis- og auðlindaráðuneytis.

Steinar Ingi er á þrítugsaldri og er úr Grafarvogi. Hefur unnið sem blaðamaður hjá Morgunblaðinu, verið virkur í Sjálfstæðisflokknum og stundað nám í stjórnmálafræði.

Hann keppti í úrslitum MORFÍs árið 2015 fyrir hönd Menntaskólans við Sund og var hann valinn ræðumaður Íslands það árið.

Frægastur er hann þó fyrir aðkomu sína að áfengisboði til ungmenna í formannskjöri Heimdalls, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem ítarlega var fjallað um á DV og Stundinni á sínum tíma. Var hann í framboði og og setti skilaboð inn á Facebook þar sem hann bauð „öllum MS-ingum“ í „frían hamborgara og bjór.“ Að því loknu færu kjósendur í Valhöll þar sem þeir ættu að greiða listanum sem hann var á atkvæði.

Steinar Ingi setti inn yfirlýsingu á Facebook-síðu skólafélags MS þar sem hann harmaði málið. „Ég harma það mjög að skilaboðin sem eru sýnd á þessum skjáskotum hafi farið í umferð.“ Það hafi ekki verið ásetningur hans sé meðframbjóðenda hans að halda partý „og bjóða öllum nemendum innan MS í stórt partý með fríu áfengi fyrir fólk undir lögaldri.“

Sagði hann við blaðamann að hann væri á fundi en svaraði svo aldrei símanum.