Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra prísar sig væntanlega sælan yfir því að hafa skellt sér í sólina til Tenerife yfir jólin. Guðlaugur dvelur þar í góðu yfirlæti en það sama verður ekki sagt um aðra ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem flestir eru nú í einangrun með Covid-19.
Fréttablaðið greinir frá þessu á vef sínum.
Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum í gærkvöldi og í morgun eru þau Bjarni Benediktsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir öll í einangrun með Covid-19. Jón Gunnarsson er eini ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem staddur er hér á landi sem er ekki með veiruna.
Afar fámennt var af þessum sökum á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun og var Jón sá eini úr ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins sem mætti.