Guðjón Jensson eldri borgari og leiðsögumaður telur ansi margt hæpið og skondið í grein kínverska sendiherrans á Íslandi um aldarafmæli Kommúnistaflokks Kína.
Segir hann grein sendiherrans í Fréttablaðinu teljast mjög einhæfur áróður: „Þar sem verið er að draga athygli að árangri Kommúnistaflokksins sem verður að teljast góður en þegar á heildina er litið er stjórnarstefnan byggð á kúgun þjóðfélagshópa sem ekki hafa verið samþykkir stjórninni í Peking,“ skrifar Guðjón.
Sjá einnig: Kommúnistaflokkur Kína fagnar aldarafmæli
Guðjón fer yfir grein sendiherrans og byrjar á þessari staðhæfingu sendiherrans um vinsældir flokksins: „Kommúnistaflokkur Kína er flokkur sem hefur hag allrar þjóðarinnar í huga og nýtur stuðnings þjóðarinnar allrar,“ skrifar sendiherrann og telur Guðjón þetta vart geta verið sannmæli.
„Enda er óvíða sem mannréttindi þ.á.m. skoðana- og tjáningafrelsi eru jafn skorin við nögl en í Kína um þessar mundir.“
Guðjón segir sendiherrann fara frjálslega með fullyrðingar um að stjórnin sé að framfylgja vilja þjóðarinnar.
„Hún hefur aldrei verið spurð kannski í heila öld enda valkosturinn enginn. Einræðið spyr þjóðina aldrei um neitt, það mótar stjórnarfarið og þar með allt samfélagið eftir eigin höfði.“
Sjá einnig: Lengi lifi frjáls hugsun
Bendir hann á að í Kína sé dauðarefsingum framfylgt af mikilli grimmd og að þar séu viðhöfð svokölluð klíkustjórnmál „þar sem hver reynir á bak við tjöldin að efla völd sín og áhrif gegn því að styðja við sína skoðanabræður.“
„Kommúnistaflokkur Kína er flokkur sem heldur sig við sannleikann, býr yfir þrautseigju og hefur náð að þróast og haldast lifandi og opinn,“ segir sendiherrann en Guðjón veltir fyrir sér hvort um sé að ræða öfugmæli eða áróður. Segir hann Kína lokað land þar sem samfélagslegar umræður og gagnrýni geti ekki gengið lengra en stjórnendur vilja.