„Reyndar er það þannig að frá því að núverandi formaður tók við hef ég ekki getað kosið Sjálfstæðisflokkinn á landsvísu,“ segir Guðjón Smári Agnarsson, viðskiptafræðingur á eftirlaunum, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Guðjón segir að það hafi verið vægast sagt undarlegt að fylgjast með aðgerðum flokksins sem hann byrjaði að kjósa rúmlega tvítugur. Hann kveðst hafa haldið áfram að kjósa flokkinn fram að bankahruni með þeim undantekningum að hann skilaði auðu þegar honum fannst líklegt að framsóknarmaður sem skipaði annað sæti á lista flokksins í Austurlandskjördæmi kæmist inn með hans atkvæði.
„Ég er að tala um aðgerðir flokksins í kreppunni sem Kínaveiran Covid-19 hefur valdið, óhemjumikla skuldsetningu ríkissjóðs og ótrúlegar takmarkanir á atvinnufrelsi fólks, umskipti á afstöðu flokksins gagnvart því að orkumál skuli vera utan við áhrifavald Evrópusambandsins en það var ein aðalforsenda þess að margir flokksmenn sættust á aðild að EES og loks það hvernig reyndum þingmönnum er haldið frá ráðherraembættum og þeim hreinlega ýtt út í horn og óreyndir þingmenn með ókunnar skoðanir eru hafnir til valda.“
Guðjón segist í grein sinni taka afstöðu til flokka einkum eftir því hvernig þeir vilja halda í sjálfstæði þjóðarinnar og hvaða afstöðu þeir hafa til atvinnurekstrar lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hann útskýrir svo hvers vegna hann hefur ekki kosið Sjálfstæðisflokkinn síðan núverandi formaður, Bjarni Benediktsson, tók við.
„Það er geymt en ekki gleymt að hann hélt því fram í Fréttablaðinu fyrir u.þ.b. 15 árum að hann væri þeirrar skoðunar að Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið. Þó að margt gott megi segja um manninn og þó að hann hafi ýmislegt gott gert í fjármálaráðuneytinu þá er það afar ótrúverðugt að flokkur hafi formann sem hefur öndverðar skoðanir við grundvallarstefnu flokksins. Ég hef skynjað orð hans um sjálfstæðismál þannig að hann hafi ekki skipt um skoðun á málinu – bara að það henti ekki að ganga inn um þessar mundir.“
Hann segir að Sjálfstæðisflokkurinn verði að standa undir nafni því annars sé ekki hægt að kjósa hann.
„Mér virðist að hann sé að breytast í krataflokk. Kannski heldur forysta flokksins að þeir nái inn krötunum sem gengu út og stofnuðu Viðreisn. Þá gleyma þeir fólkinu sem hefur kosið flokkinn vegna þess að hann hefur staðið vörð um sjálfstæði landsins. Ég hef reyndar haft það á tilfinningunni í mörg ár að forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra séu líka þeirrar skoðunar að Íslendingar eigi að ganga í ESB – bara ekki strax.“
Hann segir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar við pöntun bóluefnis gegn COVID-19 styrki þessar grunsemdir hans, ríkisstjórnin hafi hreinlega afsalað sér þeim rétti að frjáls og fullvalda ríkis að geta keypt bóluefni með öðrum leiðum. „Það var ekki við hæfi að Sjálfstæðisflokkurinn tæki þá afstöðu.“
Guðjón er svo ekki sáttur við þátttöku Sjálfstæðisflokksins í því að grípa hart til varna í liðinni viku þegar þrjú smit greindust utan sóttkvíar. „Hvernig stendur á því að Sjálfstæðisflokkurinn tekur þátt í því að loka atvinnufyrirtækjum einn ganginn enn? Nú er þó búið að sprauta bóluefni í stærstan hluta þeirra sem eru viðkvæmir fyrir því að deyja af völdum veirunnar. Það geta auðvitað margir veikst en það er ekki hægt að loka þjóðfélaginu út af því; það er ekki gert vegna annarra sjúkdóma. Það er hamrað á því réttilega að landið geti aldrei orðið laust við veiruna en samt miðast aðgerðirnar að því að gera þjóðfélagið veirulaust,“ segir hann meðal annars.