Ef einhver á skilið lof þessa dagana er það Guðjón Óskarsson, 70 ára Reykvíkingur, sem náði þeim áfanga í gær að týna upp tyggjóklessu númer tíu þúsund af götum borgarinnar.
Guðjón setti sér í sumar það markmið að ná sem flestum tyggjóklessum af götum borgarinnar, sérstaklega í miðborginni, á tíu vikum. Óhætt er að segja að Guðjón hafi staðið við stóru orðin því tyggjóklessurnar telja nú tíu þúsund. Guðjón fagnaði þessu ákaft eins og sjá má á myndbandi sem sjá má á Facebook-síðu átaksins.
Guðjón var í viðtali við RÚV um átakið í sumar þar sem hann var spurður um ástæður þess að hann ákvað að ráðast í átakið.
„Mér fannst kominn tími til, þetta er svodan viðbjóður. Ég líka missti vinnuna og varð náttúrlega að koma mér í að gera eitthvað. Mér fannst þetta alveg upplagt, ég hef fengist við þetta áður. Þetta er ekki erfitt, þetta er vissulega leiðinlegt og tímafrekt, en maður sér alltaf árangur og það er svolítið mikið mál,“ sagði Guðjón í viðtalinu en hann keypti sér sérstakan hreinsibúnað sem aðstoðar hann við að ná klessunum af götunum.
Jæja gott fólk, ánægjuvogin mín rauk heldur betur upp þegar ég fletti í 5 tölur og sá 10.000. Þetta var heldur betur...
Posted by Tyggjóið Burt on Þriðjudagur, 1. september 2020