Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, segir að hann hafi ekki brotið reglur um varkárni með því að setja Læk við færslu Helga Jóhannessonar lögmanns sem baðst afsökunar á hegðun sinni á Facebook í gær. „Ég like-aði færslu Helga vegna þess að ég kunni að meta þá iðrun og einlægni sem fólst í henni. Batnandi manni er best að lifa,“ sagði Benedikt í svari til Vísis.
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir lögmaður gagnrýndi Benedikt í dag og sagði hann meðvirkan gerendum. Benedikt hafnar því.
Guðfinna svarar honum svo aftur á Facebook og er enn hvassariþ Veltir hún því upp hvort forseti Hæstaréttar ætli þá líka að byrja að meta einlægni þolenda:
„Spurning hvort forseti Hæstaréttar ætlar nú að fara læka almennt allar færslur ef hann kann að meta þá iðrun og einlægni sem í þeim felast eða hvort það verði bara hjá nánustu vinum,“ segir hún.“ „Spurning hvort hann ætli líka að meta einlægni þolenda og læka hjá þeim.“